Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Aldrei aldrei

Forsíða kápu bókarinnar

Grípandi saga sem fyrst kom út í þrem hlutum en er hér sameinuð í eina bók.

Charlize Wynwood og Silas Nash hafa verið bestu vinir síðan þau lærðu að ganga og ástfangin síðan þau voru fjórtán. En frá og með deginum í dag þekkja þau ekki hvort annað.

Fyrsti kossinn, fyrsta rifrildið, augnablikið sem þau urðu ástfangin...allar þessar minningar eru horfnar. 

Charlie og Silas þurfa í sameiningu að fina út úr því hvað kom fyrir þau og hvers vegna. Því meira sem þau grafa upp því fleiri spurningar vakna:

Hvað kom upp á milli foreldra þeirra?

Hvað veit spákonan um málið?

Hvers vegna í ósköpunum höfðu þau eiginlega verið par?

Það er ömurlegt að gleyma en það gæti verið verra að muna.