Höfundur: Colleen Hoover

Úr eldri árgöngum

Athugið að bækur úr eldri útgáfum Bókatíðinda eru birtar hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar.

Titill Höfundur Útgefandi Lýsing
9. nóvember Colleen Hoover Björt bókaútgáfa - Bókabeitan Fallon kynnist Ben, upprennandi rithöfundi, daginn áður en hún hyggst flytja þvert yfir landið. Þau laðast hvort að öðru og ákveða að verja saman síðasta deginum hennar í Los Angeles. Viðburðarík ævi Fallon veitir Ben innblástur að hans fyrstu skáldsögu og þau ákveða að hittast árlega á þessum sama degi til að fylla inn í söguþráðinn.
Aldrei aldrei Colleen Hoover Björt bókaútgáfa - Bókabeitan Grípandi saga sem fyrst kom út í þrem hlutum en er hér sameinuð í eina bók. Charlize Wynwood og Silas Nash hafa verið bestu vinir síðan þau lærðu að ganga og ástfangin síðan þau voru fjórtán. En frá og með deginum í dag þekkja þau ekki hvort annað.
Hjartabein Colleen Hoover Björt bókaútgáfa - Bókabeitan Þegar leigusali Beyah hendir henni út neyðist hún til að leita á náðir föður síns sem býr við allsnægtir í sumarleyfisparadís ríka fólksins í Texas. Þar kynnist hún hinum myndarlega og forríka Samson sem Beyah er sannfærð um að hún eigi fátt sameiginlegt með. Undir ríkmannlegu yfirborði hans glittir þó í eitthvað kunnuglegt, eitthvað brotið.
Sé eftir þér Colleen Hoover Björt bókaútgáfa - Bókabeitan Morgan setti líf sitt á bið þegar hún varð ófrísk sautján ára og er harðákveðin í að koma í veg fyrir að Clara, sextán ára dóttir hennar, geri sömu mistök. En Clara hefur heldur engan áhuga á að vera eins og mamma hennar sem henni finnst óþarflega fyrirsjáanleg.
Verity Colleen Hoover Björt bókaútgáfa - Bókabeitan Rithöfundurinn Lowen Ashleigh er í fjárhagskröggum þegar hún fær tilboð sem hún getur ekki hafnað. Jeremy Crawford, eiginmaður metsöluhöfundarins Verity Crawford, ræður Lowen til að klára síðustu bækurnar í afar vinsælum bókaflokki sem rúmföst eiginkona hans er ekki fær um að ljúka.
Þessu lýkur hér Colleen Hoover Björt bókaútgáfa - Bókabeitan Stundum er það sá sem maður elskar mest sem særir dýpst. Lífið hefur ekki alltaf verið Lily auðvelt og hún hefur þurft að leggja hart að sér. Hún komst frá smábænum sem hún ólst upp í, útskrifaðist úr háskóla, flutti til Boston og stofnaði eigið fyrirtæki. Þegar hún kynnist heila- og taugaskurðlækninum Ryle virðist lífið hreinlega of gott ...