Allt eða ekkert

Forsíða bókarinnar

Lexia Vikander finnst hún ekki eiga heima meðal tággrannra kvenna í auglýsingageiranum sem telja kalóríur í hvert mál. Nýr eigandi hefur tekið við fyrirtækinu sem hún vinnur hjá og það er altalað að mörgum verði sagt upp. Til að hressa sig við bregður Lexia sér á bar. Þar sest við hliðina á henni myndarlegasti maður sem hún hefur séð ...

.....

Lexia Vikander er textahöfundur á auglýsingastofu. Henni finnst hún ekki eiga heima meðal tággrannra kvenna í auglýsingageiranum sem telja kalóríur í hvert mál. Nýr eigandi hefur tekið við fyrirtækinu og það er altalað að mörgum verði sagt upp. Til að hressa sig við bregður Lexia sér á bar og hellir í sig alltof mörgum bleikum drykkjum. Allt í einu sest við hliðina á henni myndarlegasti maður sem hún hefur séð!

Adam Nylund er maður sem hefur unnið sig upp af eigin rammleik. Hann vill helst einbeita sér að vinnunni en konan við hliðina á honum á barnum vekur áhuga hans. Að minnsta kosti þangað til hún snýr sér að honum drukkin, kyssir hann og kastar upp yfir skóna hans.

Á mánudagsmorgun hittast þau aftur, Lexia og nýi yfirmaður hennar – Adam.

Bráðfjörug og spennandi ástarsaga um líf nútímakvenna, heitar ástríður og fáránlegar líkamsímyndir.

„Meistari kvennabókmenntanna í Svíþjóð, Simona Ahrnstedt, er frábær rithöfundur.“ – Dagens Nyheter

„Áhugaverð, vel skrifuð og æsandi.“ – Dala-Demokraten

„Það er sannkölluð listgrein að stilla saman strengi skemmtunar og þjóðfélagsgagnrýni eins og Simona Ahrnstedt gerir.“ – Sydsvenskan