Ást á prjónunum
Gertie býr með mömmu sinni og ömmu í yndislegum litlum bæ nyrst í Skotlandi, þar sem fólkið er samheldið og náttúran ægifögur. Það er þó ekki ævintýrum fyrir að fara hjá Gertie. Hún hefur unnið í sömu kjörbúðinni síðan hún lauk skóla og félagslíf hennar snýst aðallega um prjónaklúbb skoðanaglaðra kvenna. En skjótt skipast veður í lofti.
Milli þess sem hún fitjar upp á prjónana kryddar Gertie hversdaginn með dagdraumum sem hún dvelur í meira en gott þykir.
Líf Gertie tekur stakkaskiptum þegar Morag, flugstjóri hjá MacIntyre Air, birtist einn daginn í kjörbúðinni og býður henni starf hjá flugfélaginu. Fyrr en varir er Gertie komin með nýja vinnu, flutt að heiman og gamli draumaprinsinn Struan bliknar í samanburði við norska flugvélamógúlinn Calum Frost. En nýja lífinu fylgja nýjar áskoranir. Tekst Gertie að koma ofan úr skýjaborginni og sýna hvað í henni býr? Stundum er raunveruleikinn ævintýralegri en dagdraumar.
Sjálfstætt framhald af Skrifað í skýin eftir skoska metsöluhöfundinn Jenny Colgan, en bækur hennar hafa selst í fimmtán milljónum eintaka og slegið í gegn hjá lesendum á Íslandi.