Atli fer til tannlæknis

Forsíða kápu bókarinnar

Atli fær verk í eina tönnina og mamma fer með hann til Elfu tannlæknis. Á biðstofunni hittir hann Láru og Ljónsa. Atla finnst tannlæknastóllinn eiginlega vera eins og geimskip úr framtíðinni, með lítil geislasverð, kíki og slímbyssur. Spennandi! Bækurnar um Láru, Ljónsa og Atla eru litríkar og fallegar, skemmtilegar sögur sem krakkar hrífast af.