Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Lauflétt að lesa Bekkur­inn minn 1-4

Forsíða bókarinnar

Bekkurinn minn - lauflétt að lesa er einfaldari útgáfa af hinum vinsæla bókaflokki Bekkurinn minn. Hver bók er sögð frá sjónarhorni eins nemanda í íslenskum grunnskóla. Sögurnar eru áhugaverðar og spennandi og henta einstaklega vel fyrir þá sem eru að stíga sín allra fyrstu skref á lestrarbrautinni.

Bekkurinn minn og Bekkurinn minn: Lauflétt að lesa eftir Yrsu Þöll og Iðunni Örnu. Þegar fyrstu bækurnar í upprunalegu seríunni komu út sýndu viðtökurnar að það var greinilegur skortur á lesefni fyrir nýlega læs börn. Það kom fljótt í ljós að jafnvel fluglæs börn hafa gaman af Bekkurinn minn og eru forvitin að kynnast öllum þessum ólíku börnum í bekknum, hverju með sína sögu og sjónarhorn. Enda endurspegla bækurnar íslenskan veruleika sem flest grunnskólabörn þekkja. Það varð fljótlega ljóst að vantaði líka skemmtilegt lesefni fyrir ný-nýlæsu börnin, þau sem eru rétt svo farin að stauta sig fram úr orðum og setningum. Það er auðvitað mikið um slíkar bækur sem börn fá í heimalestri í skólanum, en það eru ekki margar þeirra til sölu á almennum markaði, og ekki margar seríur til. Þess vegna kviknaði hugmyndin að Lauflétt að lesa seríunni.

Bækurnar eru ennþá léttari útgáfa af fyrri bókum: sama saga, sömu myndir, en textinn er enn einfaldari og letrið stærra.