Lauflétt að lesa Bekkurinn minn 8: Hallgrímur

Forsíða kápu bókarinnar

Þessi bók fjallar um Hallgrím. Þegar þeir Amir spila fótbolta við eldri krakka heyra þeir sögu sem ásækir þá. Át ísbjörn í alvörunni handlegginn af Úlfi? Eða var það hákarl ... ?

BEKKURINN MINN - LAUFLÉTT AÐ LESA er einfaldari útgáfa af hinum vinsæla bókaflokki Bekkurinn minn.

Hver bók er sögð frá sjónarhorni eins nemanda í íslenskum grunnskóla. Sögurnar eru áhugaverðar og spennandi og henta einstaklega vel fyrir þá sem eru að stíga sín allra fyrstu skref á lestrarbrautinni.