Lauflétt að lesa Bekkurinn minn 9: Wiktoria
Þessi bók fjallar um Wiktoriu og besta leiksvæðið í bænum. Það á að skemma móann og hólinn og byggja blokk í staðinn. Wiktoria og vinir hennar taka höndum saman og mótmæla.
BEKKURINN MINN - LAUFLÉTT AÐ LESA er einfaldari útgáfa af hinum vinsæla bókaflokki Bekkurinn minn.
Hver bók er sögð frá sjónarhorni eins nemanda í íslenskum grunnskóla. Sögurnar eru áhugaverðar og spennandi og henta einstaklega vel fyrir þá sem eru að stíga sín allra fyrstu skref á lestrarbrautinni.