Bestu jól í heimi
Jólin í ár fara algjörlega úr böndunum!
Versti stormur í manna minnum skellur á Nýja-Englandi en Mabel Miller lætur það ekki á sig fá. Hún býr sig undir að eyða enn einum jólunum með köttunum sínum þremur og
forðast allt sem tengist hátíðarhöldunum. Engar skreytingar. Ekkert jólatré. Það er að segja þangað til veðrið grípur í taumana ...
... og húsið hennar fyllist af ókunnugu fólki - þegar það síðasta sem hana langar er að verja jólunum með einhverjum.
Hinir nýju gestir eru harðákveðnir í að gera það besta úr þessum óvæntu aðstæðum. Ákvörðun Mabel að halda sig til hlés fer fyrir lítið og áður en hún veit af er Mabel farin að útbúa heitt súkkulaði og baka smákökur. Mabel hefur aldrei trúað neinum fyrir leyndarmálum sínum en með hjálp nýrra vina tekst henni mögulega að finna kjark til að horfast í augu við fortíðina.