Bestu vinir

Forsíða kápu bókarinnar

Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur 2026! Skólinn er byrjaður aftur, sem er ekki gaman þegar maður á enga vini. Ari ætlar að lifa veturinn af með því að fela sig - en undarlegir hlutir eru að gerast. Hrikalega pirrandi stelpa er flutt í næsta hús við afa og einhver er staðráðinn í að leggja skólann í rúst ...

Hvernig á Ari að fela sig fyrir Kjartani þegar vandræðin virðast elta hann? Ari skilur ekkert hvað er í gangi!

Fyndin spennusaga um vináttu. Hasar og húmor!

Eva Rún og Blær hafa búið til fjölmargar barnabækur og kennt krökkum um allt land að semja sögur í Svakalegu sögusmiðjunni. Þær eru líka bestu vinkonur.