Dagbók Kidda klaufa 20
Partýklúðrið
Kiddi er ekki mikið fyrir óvæntar uppákomur – allra síst þegar afmælið hans er annars vegar. Hans eina afmælisósk er að eignast sjaldgæfa ofurskrímslamynd sem kostar fúlgur fjár. Kiddi er með áætlun um hvernig hann ætlar að ná henni og ákveður að halda fullkomna afmælisveislu.
Bækurnar um Kidda klaufa eru metsölubækur um allan heim.
En áætlanir Kidda eiga það til að fara úrskeiðis. Þegar stóri dagurinn rennur upp fer fátt eins og hann hafði séð fyrir sér. Og það kemur fljótlega í ljós að Kiddi er ekki sá eini sem hefur augastað á skrímslamyndinni.
Verður þetta besta afmæli allra tíma – eða algjört partýklúður?
Íslenskar þýðingar Helga Jónssonar á Kidda klaufa eru margverðlaunaðar og hefur Helgi meðal annars fengið Bókaverðlaun barnanna undanfarin átta ár.
Kiddi klaufi fær alla til að lesa, líka þá sem nenna því ekki!