Dóttir myndhöggvarans
Tove Jansson er þekktust fyrir sínar óviðjafnanlegu sögur um Múmínálfana en hún skrifaði einnig seiðandi bækur ætlaðar fullorðnum og er þetta sú fyrsta þeirra. Íslenskir aðdáendur Sumarbókarinnar þekkja sögusviðið og umfjöllunarefnin; átök manns og náttúru, ímyndunarafl bernskunnar, leikgleði og listsköpun auk bæði ógnar og öryggis.