Ferðalag Helenu
Helena er að undirbúa fimmtugsafmæli sitt og eiginmannsins þegar hún kemst að því að hann hefur haldið fram hjá henni. Hver er hún þegar hún er er ekki lengur eiginkona einhvers? Hlý og uppörvandi skáldsaga um konu sem brýtur upp ævilangt lífsmynstur, um ást sem krefst ekki undirgefni og hugrekkið sem þarf til að lifa í sátt við sjálfan sig.
Til að hugsa sinn gang heldur Helena ein síns liðs í jógaferð til Kerala á Indlandi. Þar kynnist hún Miche, næmum, athugulum og heillandi Frakka. Hann hlustar og reiðist ekki þegar hún er honum ósammála. Með honum upplifir Helena ást án ótta. Samt getur hún varla fengið sig til að segja honum sannleikann – að hún sé enn gift.
Undir sólinni í Kerala verður ný Helena til. En valið á milli þess sem var og þess sem gæti orðið er ekki alltaf auðvelt. Hvernig vill hún lifa lífi sínu það sem eftir er?
Ómótstæðileg saga um ást, von og nýtt upphaf.