Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Fjölskylda fyrir byrjendur

Forsíða bókarinnar

Flora Donovan er í draumastarfinu, einhleyp í New York og hefur aldrei fundist hún tilheyra neins staðar þar til hún kynnist Jack Parker og dætrum hans, Izzy og Molly. Nýja sambandið reynist Floru mikil áskorun því draugar fortíðar gætu eyðilagt allt sem hana hefur dreymt um. Dásamleg saga um ást, vináttu, sorg, fjölskyldulíf og fyrirgefningu.

Hver segir að maður geti ekki valið sér fjölskyldu?

Flora Donovan er í draumastarfinu, einhleyp í New York, borginni sem aldrei sefur. Undir glaðlegu yfirborðinu leynast hins vegar djúpur einmanaleiki og átakanlegt leyndarmál.

Flora er munaðarleysingi og hefur aldrei fundist hún tilheyra neins staðar … þar til hún kynnist Jack Parker og dætrum hans, Izzy og Molly.

Izzy býr líka yfir leyndarmáli sem hún getur ekki deilt með neinum. Síðan móðir hennar lést ári áður hefur hún fundið öryggi í því að hugsa um pabba sinn og litlu systur. Þegar hún er kynnt fyrir nýrri vinkonu pabba síns virðist hennar versta martröð ætla að rætast.

Nýja sambandið reynist Floru mikil áskorun. Hún þarf ekki aðeins að brjótast undan minningu Beccu, hinnar fullkomnu eiginkonu Jacks, fást við táning í sárum og syrgjandi æskuvinkonu, heldur einnig sjálfa sig og drauga eigin fortíðar sem geta eyðilagt allt sem hana hefur dreymt um.

Dásamlega saga um ást, vináttu, sorg, fjölskyldulíf og fyrirgefningu eftir margfa