Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Bekkurinn minn Geggjað ósanngjarnt!

Bjarni Freyr

Forsíða kápu bókarinnar

Geggjað ósanngjarnt! fjallar um Bjarna Frey sem finnst hann ítrekað hafður fyrir rangri sök.

Geggjað ósanngjarnt! fjallar um Bjarna Frey sem finnst hann ítrekað hafður fyrir rangri sök. Eitt skiptið er honum nóg boðið og hann strýkur úr frístund ásamt Mikael vini sínum.

Bekkurinn minn er bókaflokkur ætlaður byrjendum í lestri. Hver saga er sögð frá sjónarhorni eins nemanda en allar aðalpersónurnar eru saman í bekk í íslenskum grunnskóla. Lesandi fær því að kynnast fjölbreyttum veruleika ólíkra barna, bæði innan og utan veggja skólans. Sögurnar eru áhugaverðar og spennandi, með góðum og fjölbreyttum orðaforða, aðgengilegu

letri og rúmu línubili.