Hafið
Síðasta víðerni jarðar
Hvernig er hægt að bjarga hafinu og þar með plánetunni okkar? Í þessari bók fjallar Sir David Attenborough ásamt Colin Butfield um hafið, sem mótar landið sem við búum á, stýrir loftslagi okkar og skapar loftið sem við öndum að okkur. Attenborough fagnaði 100 ára afmæli á árinu. Verkið byggir á ævistarfi hans og er vonarneisti fyrir framtíðina.
Með þeirri hlýju, innsýn og lotningu sem einkennt hefur öll tímamótaverk Davids Attenborough sýnir Hafið okkur heim sem er í senn hættulega viðkvæmur og ótrúlega þrautseigur með einstaka getu til að endurnýja sjálfan sig.
„EF VIÐ BJÖRGUM HAFINU, BJÖRGUM VIÐ HEIMINUM OKKAR. EFTIR ÆVILANGA VINNU VIÐ AÐ MYNDA PLÁNETUNA OKKAR ER ÉG SANNFÆRÐUR UM AÐ EKKERT SÉ MIKILVÆGARA EN ÞAÐ.“
David Attenborough
„Heillandi lesning.“
Evening Standard.
„Ákaflega jákvæð bók.“
The Times