Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Bekkurinn minn Hjóla­hetjan

Forsíða bókarinnar

Hjólahetjan fjallar um Jón Ingva sem lendir í vandræðum með hjólalásinn sinn þegar hann fer með pabba í vinnuna. Feðgarnir þurfa að redda málunum og lenda í óvæntri eftirför á leiðinni heim.

Bekkurinn minn er bókaflokkur ætlaður byrjendum í lestri. Hver saga er sögð frá sjónarhorni eins nemanda en allar aðalpersónurnar eru saman í bekk í íslenskum grunnskóla. Lesandi fær því að kynnast fjölbreyttum veruleika ólíkra barna, bæði innan og utan veggja skólans.

Sögurnar eru áhugaverðar og spennandi, með góðum og fjölbreyttum orðaforða, aðgengilegu letri og rúmu línubili.