Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Hræðileg veisla

  • Höfundur Meritxell Martí
  • Myndir Xavier Salomó
  • Þýðandi Elín G. Ragnarsdóttir
Forsíða kápu bókarinnar

Hér verður boðið upp á veislumat sem þú hefur aldrei séð áður! Þessi bók er bráðfyndin og hryllileg. Undir stórum flipum er hægt að sjá uppáhaldsrétti allra verstu skrímslanna úr uppáhalds ævintýrunum þínum! Hinn heimsfrægi matreiðslumeistari Leó Gúttó útbýr veislu sem svo sannarlega er við hæfi skrímslanna.

Enda eru þau stödd á þriggja svartstjörnu veitingastaðnum Svarta hvítlauknum. Hér verður boðið upp á veislumat sem þú hefur aldrei séð áður!

Lyftu flipunum og skoðaðu ömmubollurnar, sniglana (soðna úr eigin slími), prinsessuhálsa og allt hitt góðgætið. Gestirnir eiga þó eftir að verða hissa — því versti borðgesturinn er ekki enn mættur ...