Hvað fá jólasveinar í jólagjöf?
Aðfaranótt aðfangadags vaknar Agnes við að jólaálfur millilendir á húsþakinu hennar. Hann var sendur frá Alþjóðlegu hátíðarstofnuninni til að gefa íslensku jólasveinunum þrettán jólagjöf og þakka þeim fyrir vel unnin störf. Það er bara eitt vandamál, hann finnur jólasveinana hvergi!
Agnes ákveður að hjálpa honum og þá upphefst æsispennandi ferðalag um Ísland. Agnes og Jólentínus hitta ýmsar vættir, sumar háskalegri en aðrar, en það sem Agnes er spenntust að vita er: Hvað fá jólasveinar eiginlega í jólagjöf?
Hér er á ferðinni bráðfyndin og spennandi saga þar sem íslenskar þjóðsagnaverur birtast í nýju ljósi. Í sögunni er ferðast vítt og breitt um Ísland með aðstoð töfra og koma meðal annars Gatklettur á Snæfellsnesi, Dimmuborgir og Akureyri við sögu.