Ísadóra Nótt og töfrar vetrarins

Forsíða bókarinnar

Hálf vampíra, hálfur álfur, algjörlega einstök! Ísadóra Nótt er sérstök af því að hún er öðruvísi. Mamma hennar er álfur og pabbi hennar er vampíra og hún er blanda af þessu tvennu.

Ísadóru finnst gaman að leika sér í snjónum, sérstaklega þegar sköpunarverk hennar vaknar til lífsins. Snjógaldrar endast hins vegar ekki að eilífu.

Getur hún bjargað nýju vinunum sínum áður en þau bráðna?

 

Bókin er stútfull af skemmtilegu aukaefni eins og uppskriftum og ýmsu til að gera með Ísadóru og Bleiku kanínu!