Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Jól í Litlu bókabúðinni

Forsíða bókarinnar

Þegar Carmen stendur uppi atvinnulaus og blönk í litla heimabænum í Skotlandi þar sem tækifærin eru af skornum skammti hringir móðir hennar í lögfræðinginn elstu dóttur sína. Þótt systurnar hafi aldrei átt skap saman býður Sofia Carmen herbergi hjá sér gegn því að hún aðstoði skjólstæðing hennar við að koma lúinni fornbókaverslun á réttan kjöl.

En staðan á bókabúðinni er mun verri en Carmen skildist, enda eigandinn ekki með mikið viðskiptavit, og henni sýnist þurfa kraftaverk til að bjarga honum frá gjaldþroti. Aðstæður heima fyrir eru líka krefjandi en jólin eru jú tími kraftaverka og fegurð Edinborgar spinnur sína töfra. Mun Carmen takast að hjálpa gamla McCredie að rétta úr kútnum, styrkja fjölskylduböndin og jafnvel finna ástina?

Sjálfstætt framhald Litlu bókabúðarinnar í hálöndunum og Litlu bókabúðarinnar við vatnið eftir skoska metsöluhöfundinn Jenny Colgan.

„Hugljúf og auðlesin bók sem hentar afar vel fyrir aðventulestur.“ Sæunn Gísladóttir, Lestrarklefanum