Kalli og súkkulaðifabrikkan

Forsíða kápu bókarinnar

Þetta dásamlega og sígilda ævintýri hefur nú verið gefið aftur út í nýrri þýðingu, sem beðið hefur verið eftir með mikilli eftirvæntingu. Vönduð útgáfa með skemmtilegri myndlýsingu, stóru letri, texta sem brotinn er upp með stórri leturstærð og góðu línubili. Upplögð til upplestrar fyrir börn frá 6 ára aldri og unga lesendur á aldrinum 8-12 ára.

Líf Kalla er að fara að stökkbreytast, þökk sé andartaks kraftaverki! Flinkasti súkkulaðigerðarmaður í heimi, sjálfur VILLI VANKAÐI, faldi FIMM GYLLTA MIÐA í fimm venjulegum súkkulaðistykkjum og þeim börnum sem finna þessa miða verður boðið að koma í heimsókn í stórfenglegu Súkkulaðifabrikkuna. Og hver er það nema hann Kalli okkar sem finnur einn gyllta miðann! En það gerðu líka fleiri börn … til að mynda hann Gústi glutti sem hámar alltaf í sig súkkulaði í gríðarlegu magni, Karta litla dekurrófa sem aldrei tekur tillit til annarra og hún Fjóla sem dýrkar tyggjó og tyggur það á sinn einstaka hátt. Síðan er það hann Mikki sem er skjágláparinn mesti. En í augum Kalla eru það súkkulaðiáin, dásamlega sælgætisgerðin og dularfullu úmpa-lúmparnir sem gera Súkkulaðifabrikku Villa vankaða að undursamlegasta stað í heimi.

Þetta stórfenglega ævintýri fangar ímyndunarafl lesandans. Enn ein snilldin úr smiðju Roalds Dahl, sagnameistarans mikla.