Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Koma jól?

Forsíða bókarinnar

Jólaljóðabók eftir einstaka listamenn sem kveðst á við fræga bók Jóhannesar úr Kötlum, Jólin koma. Hér er að finna nýjustu fréttir af Grýlu og Jólakettinum og jafnframt stíga hinar jökulhressu Grýludætur, systur jólasveinanna, fram úr þúsund ára löngum skugga bræðra sinna og arka til byggða, hver með sínu lagi og hrekkjabrögð í farteskinu.

Myndir bókarinnar eru dúkristur. Fyrir lesendur á öllum aldri.

„Hér mætast tveir hæfileikaríkir listamenn og útkoman gleður augu, eyru og hjarta, eins og við var að búast,“ Helgi Snær Sigurðsson, Morgunblaðinu ★★★★★ 1/2

Bókin var tilnefnd til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar fyrir myndlýsingar.