Leyndarmál Helenu
Tuttugu og fjögur ár eru síðan Helena eyddi sumri á Kýpur og varð ástfangin í fyrsta skipti. Hún snýr aftur með fjölskyldu sinni þegar hún erfir húsið Pandóru. Helena veit að húsið geymir leyndarmál sem hún hefur haldið frá eiginmanni sínum og syni. Þegar hún hittir óvænt gamla kærastann hefst atburðarás sem gæti haft óafturkræfar afleiðingar.
Sólrík saga um fjölskylduleyndarmál og ógleymanlegt sumar eftir Lucindu Riley, metsöluhöfund bókaflokksins um systurnar sjö.