Lífið er of stutt
Falleg og bráðfyndin saga um lífið, ástina, fjölskylduna og kúnstina að klúðra öllu saman.
Fyrir Vanessu Price er það meira en bara mottó að njóta hvers dags í botn. Mamma hennar og systir létust áður en þær urðu þrítugar og Vanessa ætlar ekki taka neinu sem gefnum hlut.
Hún hætti í vinnunni til að láta drauminn um að ferðast um allan heim rætast og átti alls ekki von á að milljónir YouTubeáskrifenda myndu fylgjast með henni deila gleðinni við að njóta hverrar stundar.
En þegar hálfsystir Vanessu skilur nýfædda dóttur sína skyndilega eftir í umsjá hennar breytist lífið úr því að vera „daglegt ævintýri“ yfir í „rosalegt ástand“. Sá síðasti sem hún býst við að rétti henni hjálparhönd er Adrian Copeland, sjóðheiti lögfræðingurinn í næstu íbúð. Hvernig hefði henni átt að detta í hug að hann væri hálfgerður barnahvíslari eða að hún myndi verja heilmiklum tíma með honum og elliæra chihuahua-hundinum hans?
Nú er hún farin að upplifa tilfinningar sem hún hafði heitið sjálfri sér að opna aldrei á. Vegna þess að það eina sem er verra en að falla fyrir Adrian Copeland er að eygja ofurlitla von um framtíð sem hún fær hugsanlega ekki að upplifa.