Litla gula hænan
Litla gula hænan er falleg dæmisaga sem kennir að maður uppsker eins og maður sáir. Dýrin sem vilja ekkert leggja á sig fá ekki ilmandi gott brauð í lok bókar. Við vinnslu þessa verks var stuðst við elstu heimildir um söguna en auk þess birtist aftast í bókinni hin þekkta útgáfa Steingríms Arasonar, sem notuð var við lestrarkennslu hér á landi.