Loki. Leiðarvísir fyrir prakkara: Hvernig skapa skal kaos

Forsíða kápu bókarinnar

Sprenghlægileg bók um æsi og þursa sem eru komnir hingað til okkar í Miðgarð í líki „venjulegrar" fjölskyldu. Í þetta sinn verður mikið kaos og hver á að bjarga málunum? Ríkulega myndlýst bók í anda dagbóka sem gerir hana þægilega aflestrar fyrir sjálfstæða lesendur. Lestraraldur 8-12 ára. Fimmta bókin í frábæru ritröðinni um Loka.

Ég heiti Loki og ég er flottasti ásinn. Ég er líka bestur í öllu og langbestur í að skapa kaos! Æ! Samt heimtar leiðinlegi Óðinn að ég bæti framkomu mína og ég þarf að vinna að því að verða almennilegri. Ha? Hvað? Ég, sjálfur Loki?

Loka gengur hreint ekki vel að bæta ráð sitt, sama hvað hann leggur sig fram. Nú reynir verulega á hann því einhver beitir göldrum sem breyta tilfinningum eins og ást eða væntumþykju í hatur og öfugt, með miklum afleiðingum. Öll lenda í álögum nema Loki, Freyja og Baldur. Þannig verður Heimdallur ástfanginn af kennara Loka og vill giftast henni, hrímþursarnir verða mestu aðdáendur Þórs og hann þeirra, Hyrrokkin snýst gegn Loka, vinkonurnar Vala og Georgína verða algjörir óvinir - allt öfugt við það sem áður var. Ástandið er agalegt og fullkomið kaos er að skapast á Valentínusarballinu í skólanum þegar hetja kemur til bjargar. En hver er það sem kemur öllum til bjargar?