Matargatið

Forsíða kápu bókarinnar

Grallaraleg myndskreytt saga með heimspekilegu ívafi. Dag einn birtist dularfullt, lítið gat úti í garði og vekur forvitni Óla og Sissu. Gatið gleypir í sig allt sem kemur nálægt því: steina og prik, sveppi, mjólkurfernu og loks kisuna hans Óla! Þegar krakkarnir ætla að bjarga kisu kemur í ljós að þetta gráðuga gat leynir svo sannarlega á sér.