Höfundur: Linn Janssen

Úr eldri árgöngum

Athugið að bækur úr eldri útgáfum Bókatíðinda eru birtar hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar.

Titill Höfundur Útgefandi Lýsing
Árstíðarverur Diljá Hvannberg Gagu Salka Bjarni og bekkjarfélagar hans eru að læra um árstíðirnar í skólanum. Hann verður því heldur hissa þegar hann vaknar einn vormorgun og allt er á kafi í snjó! Þetta passar alls ekki við það sem kennarinn sagði. Hann fer út að rannsaka málið en hittir þá fyrir kúnstugar verur sem segjast stýra veðrinu en verst er að þær eru að rífast!
Bambaló Fyrstu lögin okkar Sigrún Harðardóttir Bambaló bókaútgáfa Ný og vönduð íslensk barnabók með gullfallegum myndum og heillandi tónlist. Bókin er tilvalin til að styrkja tengsl foreldra og barna, sem geta notið þess saman að hlusta á tónlistina, syngja með og skoða litríku myndirnar. Á hverri síðu eru nemar sem yngstu lesendurnir geta sjálfir ýtt á, og heyra þá fjölbreytt hljóðfæri leika skemmtileg lög.