Miðnætti í Litlu jólabókabúðinni

Forsíða bókarinnar

Þótt Carmen hafi bjargað bókabúðinni frá gjaldþroti síðustu jól er staðan enn tvísýn. Að auki er enginn hægðarleikur að finna húsnæði á viðráðanlegu verði fyrir fátækan bóksala. En Edinborg er ævintýraborg og aldrei að vita hvaða tækifæri leynast í iðrum hennar. Ekta jólabók eftir skoska metsöluhöfundinn Jenny Colgan.

Nýja barnfóstran hennar Sofiu, rauðhærði Rudi með glettnu, gylltu augun, er kannski einmitt púkinn sem Carmen þarf til að rífa sig upp úr ládeyðunni …

Sjálfstætt framhald af Jól í Litlu bókabúðinni eftir skoska metsöluhöfundinn Jenny Colgan en bækur hennar hafa selst í yfir 10 milljónum eintaka um allan heim.