Mírabella á slæman dag

Forsíða kápu bókarinnar

Þetta er ekki góður dagur hjá Mírabellu. Besta vinkona hennar, Karlotta, hjálpar henni yfirleitt að halda í húmorinn en hún er ekki í skólanum og Mírabella finnur að hún er að komast í vont skap.

Þegar hún kemur heim og sér að bróðir hennar hefur borðað síðasta súkkulaðikexið á meðan hann var að leika við drekann hennar missir hún stjórn á skapi sínu – með afdrifaríkum afleiðingum!

Tekst Mírabellu að laga daginn áður en hún þarf að fara í háttinn?