Múmínmamma og halastjarnan

Forsíða kápu bókarinnar

Ef þú hefur enn ekki hitt Múmínálf áttu ævintýri í vændum ... Haustkvöld eitt kemur Múmínfjölskyldan saman undir stjörnum prýddum himni til að rifja upp söguna af halastjörnunni sem kom einu sinni æðandi yfir himinhvolfið í átt að Múmíndal.

Í þessari fallegu endursögn á sígildri sögu Tove Jansson, Halastjörnunni, segir frá því hvernig ást og hlýja Múmínmömmu veitti Múmínfjölskyldunni hugrekki til að halda á vit ævintýra og bjarga Múmíndal.