Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Obbuló í Kósímó Snyrtistofan

Forsíða bókarinnar

Oddný Lóa Þorvarðardóttir býr í Kjóamóa þrjúhundruð og sjö.

Hvaða krakki getur sagt það? Enginn. Obbuló á heima í Kósímó.

Þar búa líka mamma, pabbi og Bessi besti bróðir.

Hann á Þrjá pabba, sem er mjög ósanngjarnt. Obbuló á bara einn.

Bessi er stóri bróðir. Samt er Obbuló miklu STÆRRI. Hún er risabarn og stærri en allir, sem er auðvitað vitleysa. En þetta segir hún nú samt.

Á OBBULÓ sig sjálf? Hvar eru MÖRKIN hans pabba? Hver opnar FERÐASNYRTISTOFU?

Spurningunum er svarað í þessari bók.

Dinna og Dóri (Kristín Helga Gunnarsdóttir og Halldór Baldursson) búa til bækurnar um Obbuló. Þau eru verðlaunagrísir, hafa skrifað og teiknað marga kílómetra af allskonar sögum, meðal annars bjuggu þau til sjálfa Fíusól.