Handbók fyrir ofurhetjur Ofurskúrkar

Bók 11

Forsíða kápu bókarinnar

Ef okkur verður á getum við líka breytt rétt.

Lísa trúir þessu varla: Amma og Karólína eru líka ofurhetjur! Það voru þær sem sömdu Handbók fyrir ofurhetjur! En áður en hún nær að spyrja þær út í þetta er handbókinni stolið! Nú verður hún að finna hana - ef bókin fellur í rangar hendur gæti það haft hræðilegar afleiðingar!

Á sama tíma fær Wolfgang fréttir sem munu gjörbreyta lífi hans...

Bókaröðin Handbók fyrir ofurhetjur hefur slegið í gegn á Íslandi eins og á öðrum Norðurlöndum. Þetta er ellefta sagan um Rauðu grímuna og vini hennar.