Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Píanistinn í fjöllunum

  • Höfundur Karin Härjegård
  • Þýðandi Friðrika Benónýsdóttir
Forsíða kápu bókarinnar

Sjálfstætt framhald af hinni geysivinsælu Vöffluhúsið í fjöllunum, ljúflestrarbók ársins í Svíþjóð 2022. Helena hefur nóg að gera við endurbæturnar á býlinu sínu og undirbúning nýja veitingahússins. Ástin til Rikards er enn sterk, en hvernig á hún að geta púslað saman ólíkum þáttum lífs síns án þess að glata nýfundnu sjálfstæðinu?

Emily er að nálgast þrítugt, en veit ekki enn hvaða stefnu hún vill taka í lífinu. Hún býr í Uppsölum og er í námi við háskólann, eingöngu vegna þess að vel stæð fjölskylda hennar hefur alltaf lagt mikla áherslu á að hún mennti sig. En hana klæjar í lófana af sköpunarþrá, sem hún uppgötvar smátt og smátt að er arfur frá látinni ömmu hennar, Hildu.

Þegar Emily hleypir loks í sig kjarki og heimsækir Härjedalen hittir hún Helenu. Það leiðir til þess að Emily flytur inn í einn af gestabústöðunum á býli Helenu og í sameiningu kanna þær fjöllin og skógana um leið og Emily færist sífellt nær uppruna sínum. En að fylgja hjarta sínu reynist stundum erfiðast af öllu …