Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Rumpuskógur: Árás fýluskrímslisins

  • Höfundur Nadia Shireen
  • Þýðandi Solveig Sif Hreiðarsdóttir
  • Myndhöfundur Nadia Shireen
Forsíða kápu bókarinnar

Stórfótur leikur lausum hala í Rumpuskógi! En mikið stendur til því íkornapar eitt ætlar að gifta sig með pompi og prakt. Ætli skrímslið bjóði sér í brúðkaupið? Eitt er víst og það er að Teddi og Nanna og vinir neyðast nú til að halda á vit óvissunnar til þess að bjarga Rumpuskógi frá þessu hræðilega og illa lyktandi fýluskrímsli. www.kver.is