Rumpuskógur: Partíljónin

Forsíða kápu bókarinnar

Alltaf er nóg að gerast í Rumpuskógi, þar sem margvísleg dýr og fuglar búa í þokkalegri sátt og samlyndi. Í dag verða haldin hvorki meira né minna en þrjú partí en almáttugur! Verður það of mikið fyrir Stínu-pínu partíkráku? Fyndið, skemmtilegt og mikið myndlýst gamanævintýri. Fjórða bók í ritröð um Rumpuskóg. Upplestur f. 6+ ára, lestraraldur 7+.

Þegar sjálf Stína-pína partíkráka missir neistann eru góð ráð dýr. Öllum dýrunum þykir vænt um hana og þau vita líka eins og er að það verður ekkert gaman án Stínu-pínu. Dýrin gera allt sem þeim kemur til hugar til að hressa Stínu-pínu við en ekkert gengur. Stína-pína fer fyrst á fætur þegar hin afar ákveðna fyrrum kvikmyndastjarna Ingiríður önd skipar henni það en á meðan safnar assan Pálína saman stórum hóp af krákum hvaðanæva að, en þær kunna ráð undir rifi hverju og sum þeirra eru afar forn. Fjórða bókin í ritröðinni um dýrin og fuglana í Rumpuskógi er stórskemmtileg, spennandi og fyndin. Dásamleg bók og mikið myndlýst fyrir krakka á aldrinum 6 til 9 ára.