Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Ljósaserían Silfurflautan

Forsíða kápu bókarinnar

Þegar silfurflauta Nessu hverfur á dularfullan hátt draga Aníta og Andri fram ráðgátugleraugun. Nú þurfa þau að hjálpast að því vinkona þeirra á að spila á tónleikum um kvöldið svo tíminn er naumur. Finna systkinin flautuna í tæka tíð?

Í bókaklúbbnum Ljósaseríunni eru myndskreyttar barnabækur með fjölbreyttum efnistökum. Sögurnar eru eftir íslenska höfunda og túlkaðar af ólíkum myndhöfundum. Bækurnar eru misþungar en hafa allar þægilegt letur og rúmt línubil.