Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Stærsti og furðulegasti ævintýrabíll heimsins

Hín ótrúlega saga

  • Höfundur Sven Maria Schröder
  • Þýðendur Ásmundur Helgason og Elín G. Ragnarsdóttir
Forsíða kápu bókarinnar

Brúnó er ægilega stoltur af litla rauða bílnum sínum. En í umferðinni eru svo mikil læti; fólk að flauta og kalla – og svo, „búmm“! Það verður árekstur. Árekstur! Enginn slasast, en bíllinn er ónýtur. Og hvað nú? Brúnó fær snilldarhugmynd. Hann og vinir hans smíða nýjan og brjálaðan bíl úr beygluðum bílflökum. Þeir eru óstöðvandi.

Það eru svo margar vélarhlífar, bretti og bílstólar á ruslahaugnum... Þeir skrúfa, hamra og sjóða.

Hver verður útkoman?

Sagan um Ævintýrabílinn er stórskemmtileg, með stórgóðum teikningum og er því fullkominn fyrir litla lesendur.