Sumar í skerjagarðinum
Matreiðslubók frá hafsbrúninni
Hvað er ljúfara en sumarblíða í sænska skerjagarðinum? Einstök matreiðslubók, glæsilega myndskreytt, þar sem metsöluhöfundurinn Viveca Sten reiðir fram ómótstæðilega rétti en bregður jafnframt upp lifandi svipmyndum og sögum af lífi fólksins í sænska skerjagarðinum fyrir utan Stokkhólm.
Sænski skerjagarðurinn vekur hlýjar tilfinningar í hjörtum allra sem þangað hafa komið. Og ekki síður lesenda glæpasagnaflokksins Morðin í Sandhamn eftir Vivecu Sten eða horft á sjónvarpsþættina sem byggðir eru á bókunum.
Í þessari dásamlegu matreiðslubók býður Viveca Sten upp á girnilegt sýnishorn af fjölbreyttri matarhefð á eyjum skerjagarðsins. Þótt Sandhamn sé miðpunktur frásagnarinnar leiðir Viveca lesendur einnig til fagurra eyja í útjaðri skerjagarðsins og lýsir gómsætri matarmenningu þeirra.
Viveca Sten er einn virtasti glæpasagnahöfundur Norðurlanda. Bókaflokkar hennar, Morðin í Sandhamn og Morðin í Åre, hafa slegið í gegn.