Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Sumar í strand­hús­inu

Forsíða bókarinnar

Þegar meistarakokkurinn Cliff Whitman deyr í bílslysi breytast aðstæður Joönnu Whitman á svipstundu. Þrátt fyrir skilnað vegna síendurtekins framhjáhalds er áhugi slúðurblaðamanna á henni enn sá sami. Þegar hún kemst að því að unga konan sem var með fyrrverandi eiginmanni hennar í bílnum er ólétt, finnur Joanna sig knúna til að bregðast við.

Leyndarmál, vinátta, rómantík og papparassar á gylltum ströndum Kaliforníu

Þegar meistarakokkurinn Cliff Whitman deyr í bílslysi breytast aðstæður Joönnu Whitman á svipstundu. Þrátt fyrir skilnað vegna síendurtekins framhjáhalds er áhugi slúðurblaðamanna á henni enn sá sami. Þegar hún kemst að því að unga konan sem var með fyrrverandi eiginmanni hennar í bílnum er ólétt, finnur Joanna sig knúna til að bregðast við.

Ashley Blake trúir því varla þegar Joanna sækir hana á spítalann og býður henni með í fullkomna, afskekkta strandhúsið hennar. Joanna ætti að hata hana, ekki bjóðast til að hjálpa henni en þar sem Ashley er ein og ólétt getur hún ekki annað en þegið boðið. Hún óttast samt að ef Joanna vissi raunverulega ástæðu þess að hún var í bílnum með Cliff myndi hún ekki vera svona örlát.

Leyndarmálin sem krauma undir heitri sumarsólinni munu reyna verulega á þennan óvænta vinskap.