Þar sem vindurinn dansar

Forsíða kápu bókarinnar

Tove hefur starfað hjá sama forlaginu í sautján ár og unnið sig upp í stöðu útgáfustjóra. Þegar nýir eigendur taka óvænt við fyrirtækinu breytist allt.

Í hita augnabliksins ­segir hún upp – og skyndilega er tilveran komin úr skorðum.

Sonurinn er fluttur að heiman, sorgin eftir andlát móður ­hennar er enn sár og í fyrsta sinn í langan tíma veit Tove ekki hvað framtíðin ber í skauti sér. Hún leitar skjóls í gömlu húsi móður sinnar í í sænska skerjagarðinum við Arkösund, þar sem hún reynir að finna aftur fótfestu.

Á háalofti hússins bíður hennar óvænt uppgötvun: gömul dag­bók sem tilheyrði Märtu frænku hennar. ­Dagbókarfærslurnar leiða Tove aftur í tímann, til Ameríku í upphafi síðustu aldar, þar sem hörmulegur bruni markaði upphaf dularfullrar ­atburðarásar. Eftir því sem Tove kemst nær sannleikanum um örlög Märtu breytist sýn hennar á eigið líf.

Hrífandi skáldsaga um fjölskylduleyndarmál, missi og von – og hugrekkið sem þarf til að þora að velja nýja leið.