Tólf þulur

Forsíða kápu bókarinnar

Nýortar þulur Þórarins handa börnum, foreldrum þeirra og öðrum aðstandendum. Myndir eru eftir Lindu Ólafsdóttur. Í bókinni hefur skáldið komið sér fyrir í einu helsta kjörlendi íslenskrar tungu, þuluhefðinni, og þylur frá morgni til kvölds um liti og tóna, fugla og veður, tröll og drauga, berjamó og stjörnuhimin, svo fátt eitt sé talið.

Beiting máls og mynda tekur mið af nútímanum en tenging við fyrritíðarhöfunda er þó augljós. Í bókarlok birtist Þuluþökk til þeirra:

Höfundum þeim sem þuldu

skal þakkað, svo sem Huldu

og öðrum af þeim stóru

sem á undan fóru

ekki síst Theódóru

og einnig Erlu

ortu þær marga perlu.

Þakkað skal allt sem Jón Árnason gaf

og Ólafur Dav.

Loks skal lof síst spara

hinum léttstíga nafnlausa skara

ættmæðra og ættfeðra vorra

allar götur frá Snorra.