Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Treystu mér

Forsíða kápu bókarinnar

Allt leikur í lyndi hjá Ewert Green. Í fyrsta sinn í þrjátíu ár er hann í sambandi við konu sem hann vill hafa sig til fyrir.

Hvernig í ósköpunum gat þá allt breyst í martröð með banvænum sprautuskömmtum, líffæraviðskiptum, þrælahaldi og mannránum? Og hvernig varð þetta allt saman til þess að manneskja nákomin Ewert var myrt?

Með þessum spennutrylli staðfestir Anders Roslund enn á ný að hann er einn af allra bestu glæpasagnahöfundum samtímans.

Elín Guðmundsdóttir íslenskaði.

„Spennusögur Roslunds eru með þjóðfélagslegum undirtóni ... í anda forvera hans, Stiegs Larsson og Sjöwahl & Wahlöö, en hann er betri stílisti en þau. ... Treystu mér er óhugnanlega góð lestarupplifun.“ – Jyllands-Posten

„Anders Roslund skrifar af snerpu og býr yfir ómótstæðilegum hæfileika til að byggja upp spennu.“ – Dagens Nyheter

„Eins og jafnan hjá Roslund er frásögnin eiturskörp og brálæðislega spennandi.“ –Expressen

* * * * * – Jyllands-Posten