Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Uppskrift að klikkun

Hjartasósa, hafgúuheilar og gvakamóri við leiðindum

Forsíða bókarinnar

Lúsí er 13 ára. Henni leiðist nýi kærasti mömmu sinnar og dreymir um að flytja til Berlínar. Lúsí finnst hún detta í lukkupottinn þegar hún sér auglýst eftir manneskju til að viðra hund hinum megin í bænum en kemst þó fljótt að því að það er enginn hundur heldur skrítinn gamall maður í leit að ritara fyrir dularfulla uppskriftabók.

Auðvitað trúir Lúsí ekki tali hans um háleynileg hráefni eins og drekahjörtu (mjög lík tómötum) og varúlfahráka (mjög áþekktur venjulegu hunangi). Þrátt fyrir það ákveður hún að prófa nokkrar uppskriftirnar, eins og til dæmis hjartasósuna, þótt hún sé samt ekki beint skotin í Marvin – eins og allar hinar stelpurnar – en það sakar varla að prófa?

Uppskrift að klikkun hlaut hin virtu Þýsku ung­ mennabókaverðlaun og Bókmenntaverðlaun Hamborgar.

„ Fyrst og fremst er stíll höfundar Uppskriftar að klikkun einstaklega ferskur. Það er ekki að finna örðu í skrifum Zipfel af þess konar yfirlæti sem getur gert út af við skáldverk sem miðuð eru að táningum – þegar höfundar gefa sér að táningar séu úr jafnvægi, of dramatískir, ómeðvitaðir um umhverfi sitt og fyrst og fremst: vitlausari en fullorðnir.“ Salvör Gullbrá Þórarinsdótttir, Stundinni ★★★★

Bókin var tilnefnd til Íslensku þýðingaverðlaunanna.