Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Bekkurinn minn Varúlf­ur­inn

Forsíða bókarinnar

Varúlfurinn fjallar um Leonoru og orðróminn um varúlfinn í skólanum. Er Héðinn húsvörður í alvörunni varúlfur sem er læstur inni í kompu þegar myrkrið skellur á?

Daginn fyrir hrekkjavökuna komast Leonora og Ragnar til botns í málinu.

Bekkurinn minn er bókaflokkur ætlaður byrjendum í lestri. Hver saga er sögð frá sjónarhorni eins nemanda en allar aðalpersónurnar eru saman í bekk í íslenskum grunnskóla. Lesandi fær því að kynnast fjölbreyttum veruleika ólíkra barna, bæði innan og utan veggja skólans. Sögurnar eru áhugaverðar og spennandi, með góðum og fjölbreyttum orðaforða, aðgengilegu letri og rúmu línubili.