Höfundur: Anne Sofie Hammer

Ég og Milla Í pössun

Milla og Milla eru mættar aftur til leiks! Nú þarf Milla að vera í pössun hjá ömmu sinni sem er bæði mikil skvísa og nagli, og reynist eiga sér risastórt leyndarmál. Bumban á Línu kennara stækkar, Jónas bróðir er enn sami unglingurinn og Bassi er áfram krúttlegasti hundur í heimi! Sannkölluð lestrarskemmtun með myndum sem dansa á síðunum.

Úr eldri árgöngum

Athugið að bækur úr eldri útgáfum Bókatíðinda eru birtar hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar.

Titill Höfundur Útgefandi Lýsing
Ég og Milla Allt í köku Anne Sofie Hammer Forlagið - Vaka-Helgafell Milla og Milla eru bestu vinkonur sem heita ekki aðeins sama nafni heldur eru jafn góðar í að finna upp á einhverju sniðugu. Þess vegna fjallar þessi bók um allt í senn, undarlegar kökur, óperur, gerviaugu, Línu kennara, Bassa hund, Jónas stóra bróður og heimsins fullkomnasta prump! Bráðskemmtileg og lifandi saga með stóru letri og fyndnum myndum.