Höfundur: Eyrún Ísfold Gísladóttir

Lubbi verkefnabók #2

Litrík og skemmtileg verkefnabók með Lubba. Fjölmörg verkefni sem auka færni í að meðtaka tengsl málhljóða og bókstafa. Þannig er hægt að leggja grunn að lestrarnámi og læra að skrifa eftir fyrirmynd. Fjöldi forvitnilegra orða og margs konar vefnefni stuðla að auknum orðaforða sem ýtir undir lesskilning og auðugt málfar.

Úr eldri árgöngum

Athugið að bækur úr eldri útgáfum Bókatíðinda eru birtar hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar.

Titill Höfundur Útgefandi Lýsing
Lesið með Lubba Lubbi og lömbin & Lubbi eignast vin Eyrún Ísfold Gísladóttir og Þóra Másdóttir Forlagið - Mál og menning Tvær fallegar og litríkar léttlestrarbækur um Lubba eftir höfunda bókarinnar Lubbi finnur málbein. Lubbi lendir í ævintýrum og á hverri síðu eru hljóðin og táknrænar hreyfingar þeirra sýnd. Þannig verður lesturinn skemmtilegur og gagnlegur en táknrænu hreyfingarnar mynda brú á milli málhljóða og bókstafa.
Lubbi Verkefnabók #1 Eyrún Ísfold Gísladóttir og Þóra Másdóttir Forlagið - Mál og menning Í bókinni er fjöldi verkefna sem auka færni í að meðtaka tengsl málhljóða og bókstafa. Þannig er hægt að leggja grunn að lestrarnámi og læra að skrifa eftir fyrirmynd. Fjöldi forvitnilegra orða og margs konar verkefni stuðla að auknum orðaforða sem ýtir undir lesskilning og auðugt málfar.