Höfundur: Guillaume Musso

Dauðinn og eyjan

Rithöfundur dregur sig í hlé á eyju undan ströndum Miðjarðarhafsins. Árum seinna kemur blaðakona til eyjunnar staðráðin í að ná viðtali við manninn. Sama dag finnst lík á ströndinni og yfirvöld loka eyjunni. Í ljós kemur að það eru ekki ritstörfin sem blaðakonan vill ræða, heldur leyndarmál fortíðar sem einhver virðist reiðubúinn að drepa fyrir.

Úr eldri árgöngum

Athugið að bækur úr eldri útgáfum Bókatíðinda eru birtar hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar.

Titill Höfundur Útgefandi Lýsing
Dauðinn og stúlkan Guillaume Musso Benedikt bókaútgáfa Fyrir tuttugu og fimm árum átti hin átján ára Vinca í leynilegu ástarsambandi við kennara sinn. Nóttina sem hún hvarf áttu þau stefnumót. Manon, Thomas og Maxime hafa ekki talað saman síðan þau útskrifuðust fyrir öllum þessum árum en hittast aftur á bekkjarmótinu. Mun sannleikurinn um það sem raunverulega gerðist þessa örlagaríku nótt koma í ljós?