Ljúflingar Prjónað úr sögum eftir Astrid Lindgren
Falleg prjónabók með flíkum í anda helstu sögupersóna úr bókum Astridar Lindgren. Hér eru 46 uppskriftir fyrir börn og fullorðna. Hvern dreymir ekki um derhúfuna og peysurnar hans Emils eða Kattholtskjólinn og svuntuna hennar Ídu? Línupeysa fyrir stóra og smáa, prjónaður herra Níels, peysur bræðranna Ljónshjarta svo fátt eitt sé nefnt.